Barátta við mannanafnanefnd!!!

Ég heiti Elísabet Jean Skúladóttir og ég stofnaði þetta blogg í raun eingöngu til þess að geta bloggað um þessa frétt.

Ástæða þess að ég ætla mér að blogga um fréttina er sú að ég er ein af þeim átta kvenmönnum sem heita nafninu Jean sem mannanafnanefnd var að hafna.

Amma mín er frá Englandi en hefur búið á Íslandi frá árinu 1946 og hún heitir Jean Magnússon.

Frá því að ég var lítil stúlka hefur mig alltaf dreymt um að skíra dóttur mína Jean í höfuðið á ömmu minni og í febrúar rættist sá draumur því ég eignaðis litla dóttur og skírði hana falleg íslensku nafni Emilía og bætti að sjálfsögðu Jean sem millinafni. Ég sótti ekki um leyfir fyrir nafninu áður en hún var skírð vegna þess að mér hreinlega datt það ekki í hug þar sem ég heiti þessu nafni og amma mín líka.

Svo kom símtalið! Þjóðskrá hringdi í mig og tilkynnti mér það að ekki væri hægt að skrá hana í kerfið því það væri ekki leyfi fyrir nafninu Jean.

Okkur fannst þetta hræðilegar fréttir þar sem við vorum búin að skíra hana og amma Jean var viðstödd skírnina og hún ljómaði þegar nafnið var nefnt en núna þarf ég að segja henni að nafna hennar muni aldrei verða nafna hennar. Þetta finnst mér svo ósanngjarnt. Ég gekk með þetta barn, fæddi það og klæði en þrátt fyrir allt það þá má ég ekki ráða hvað marnið MITT á að heita.

Ef skoðuð eru nöfn sem mannanafnanefnd hefur samþykkt þá má sjá að mörg hver þeirra eru hrikaleg, ég ætla ekki að taka dæmi því ég vil ekki særa aðra en ef mannanafnanefnd er sett það vald í hendi að ákveða nöfn annara manna barna þá ættu þeir að skammast sín fyrir mörg þeirra nafna sem þau samþykkja því þar er ekki verið að hugsa um velferð barnsins. Barnið þarf að bera nafn sitt alla ævi og við vitum öll hversu mörg börn verða fyrir aðkasti í lífinu af völdum annarra vegna ýmissa atriða og fáránlegt nafn er að sjálfsögðu eitt af þeim atriðum.

Ég má ekki skíra dóttur mína Emilíu Jean vegna þess að þjóðarstolt okkar leyfir það ekki því það er ekki hægt að fallbeygja nafnið. Ég hlýt þá að fá leyfi fyrir nafninu Sundlaug þar sem það beygist á sama máta og Sigurlaug, Svanlaug, Þórlaug og Snjólaug. En væri það sanngjarnt barnsins míns vegna?

Ég tek undir með henni Ásthildi Cesil að það eigi að leggja þessa nefnd niður. Ég vil ekki að geðþáttaákvörðun nokkra einstaklinga stjórni því hvað ég nefni barnið MITT.

Með von um stuðning

Elísabet Jean og Daði Steinn.


mbl.is Mega heita Dante og Rorí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nákvæmlega Elísabet, það á að leggja þessa nefnd niður sem fyrst, hún er að verða að athlægi almennings, fyrir utan að gera fólki erfitt fyrir að nefna börnin sín góðum og gildum nöfnum tengdum fjölskyldunni. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2012 kl. 17:24

2 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Það er svolítið sérstakt ef Þjóðskrá byggir á þessum úrskurði mannanafnanefndar að ekki sé leyfi fyrir Jean sem millinafni, því úrskurðurinn fjallar um Jean sem eiginnafn, ekki millinafn.

Sem rökstuðning fyrir banni á nafninu Jean vísar nefndin í 2.mgr.5.gr. laganna. 5.gr. er hins vegar í II. kafla laganna sem fjallar um eiginnöfn.  Í ykkar tilfelli er um millinafn að ræða, sem fjallað er um í III. kafla laganna.  Nú er ég ekki lögfræðingur en ég legg til að þið bendið hluaðeigandi á 3.mgr.6.gr. laganna:

Millinafn, sem víkur frá ákvæðum 2. mgr., er heimilt þegar svo stendur á að eitthvert alsystkini þess sem á að bera nafnið, foreldri, afi eða amma ber eða hefur borið nafnið sem eiginnafn eða millinafn. Þetta á klárlega við hjá ykkur.

Og ennfremur 4.mgr. sömu laga:

Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.

Skv. þessu ætti að vera í lagi að nota nafnið Jean sem millinafn með þessum rithætti (enda hefð fyrir því síðan 1946 huið minnsta), og ennfremur sé ég ekki annað en að nefndin hafi ekki bannað nafnið Jean sem millinafn, heldur bara sem eiginnafn.

Erlingur Alfreð Jónsson, 13.7.2012 kl. 17:34

3 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Leiðrétting:  Ég tek aftur það sem ég sagði í fyrri færslu.  Er nú búinn að sjá listann yfir millinöfnin.....vissi ekki að það væri sérlisti.  Taldi sem sagt að nafn nr. 2 væri millinafn, en svo er víst ekki.  Þetta er meira ruglið.

Erlingur Alfreð Jónsson, 13.7.2012 kl. 18:11

4 identicon

Já þetta er einstaklega fáránlegt því þjóðskrá sendir mér bréf þar sem stendur að 8 konur á Íslandi beri nafnið Jean frá árunum 1926 sem er amma mín og svo 2006. Ef lögin breyttust 1996 hvers vegna fær þá ein nafnið árið 2006?

Enn fremur stóð í bréfinu að þar sem 8 konur beri nafnið þá standist það kröfur þess að fá að standa. Búin að senda mannanafnanefnd mörg bréf með góðum rökum bæði frá mér sjálfri og einnig úr þeirra bréfi til mín en þar stenst ekkert. Skoðaðu til dæmis kaflann um tökunöfn hjá mannanafnanefnd, þar stenst Jean alveg en þeir koma samt alltaf til baka með eitthvað lögbull ....2 málsgrein 5 laga bls blablabla og álíka bull.

Þetta er millinafn og það er nú þegar hefð fyrir því, þetta er ekki nýtt nafn sem ég fann og ákvað að nota!

Takk fyrir að koma með komment :)

Elísabet Jean Skúladóttir (IP-tala skráð) 13.7.2012 kl. 19:08

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta er bara sorgleg yfirráðasemi einhverrar nefndar út í bæ sem á með réttu að leggja niður.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.7.2012 kl. 19:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Elísabet Jean Skúladóttir

Höfundur

Elísabet Jean Skúladóttir
Elísabet Jean Skúladóttir
Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband